Sýnir færslur með efnisorðinu Menning. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Menning. Sýna allar færslur

miðvikudagur, 3. mars 2010

Loftkastalinn sem hrundi

















Við hjónin fórum tvö saman í bíó um helgina en það þykir nokkuð merkilegt þar sem við höfum ekki farið tvö saman í bíó síðan ég veit ekki hvenær. Þar sem við erum miklir aðdáendur Lisbeth Salander og Mikael Blomkvist var ekki um annað að ræða en að sjá þriðju myndina í Millenium seríunni. Við urðum ekki fyrir vonbrigðum frekar en þegar við sáum hinar tvær. Fyrir utan súrefnislausan bíósal var þetta hin besta kvöldstund.

Mér finnst Lisbeth Salander svo yfirgengilega svöl að ég felldi næstum tár þegar myndin var búin yfir að ég fengi ekki að sjá fleiri myndir með henni. En svo er nú það.

fimmtudagur, 11. júní 2009

Rauðhetta

Skelltum okkur í Elliðaárdalinn með Jónu og Stellu og sáum Leikhópinn Lottu sýna Rauðhettu. Þær frænkur sátu stjarfar í þessa klukkustund sem sýningin tók. Mæli með þessari sýningu.





þriðjudagur, 9. júní 2009

Björnslundur

Fórum með góðum vinum í Björnslund þar sem fyrsta útileikskóladeild landsins er starfrækt. Vinkonurnar Júlíana og Arngunnur skemmtu sér konunglega.





Vinkonurnar þurftu að pissa :)


föstudagur, 5. júní 2009

Maí

Jæja loksins drógum við upp myndavélina og fórum að taka myndir aftur eftir smá lægð...
Hér koma nokkrar maímyndir :)

Friðrik Sindri, Stella og Júlíana í blíðviðri á Klambratúni.

Skelltum okkur í Húsdýragarðinn og sáum "live" fæðingu hjá svínamömmmu.

Frænkur að dunda sér í húsdýragarðinum.


Tengdó fimmtug og er hér að knúsa númer 3 og 4.

miðvikudagur, 12. nóvember 2008

Bylgjubáturinn

Ég hlusta nú ekki oft á útvarpsstöðina Bylgjuna en set stundum á hana ef ég er ein í bílnum og vonast til að hitta á eitthvað skemmtilegt lag til syngja hástöfum með. Í gærkvöldi var ég á heimleið í bílnum mínum og freista þess að hitta á eitthvað gott lag á Bylgjunni. Ég lendi á einhverjum ömurlegum útvarpsmanni sem aldrei fyrr. En mér varð allri lokið þegar hann lét út úr sér: "Til hamingju með að vera með okkur hér í kvöld, það er svo æðislegt að vera hér um borð í Bylgjubátnum."
Bylgjubátnum.....hvað er það??

þriðjudagur, 28. október 2008

Ég heillaðist...



... af þessum manni þegar ég horfði á viðtal við hann hjá Evu Maríu á sunnudagskvöldið. Ekki það að ég hafi ekki heillast af honum áður. Þeir sem misstu af þættinum, skammist ykkar og horfið á hann núna.

sunnudagur, 5. október 2008

Skilaboðaskjóðan

Við fjölskyldan skelltum okkur í leikhús í dag. Skilaboðaskjóðan varð fyrir valinu og við skemmtum okkur konunglega. Júlíana spurði tvisvar á meðan sýningu stóð hvort við gætum farið heim, en þá voru alveg hræðileg atriði í gangi, norn, stjúpa og úlfur á sviðinu.
Í kvöld var hún svo að fletta bókinni sem leikritið er byggt á og sagðist vera að lesa fyrir Sigga. Siggi er dúkkan hennar og virkur þátttakandi í heimilislífinu.
Svo byrjaði hún: "Einu sinni var lítil stelpa sem hét norn og hún var með píku."

þriðjudagur, 9. september 2008

Óreiða á striga en engin óreiða í jóga.

Var að klára þessa bók og ég er ástfangin af Kristínu Marju Baldursdóttur. Ég fékk fyrri bókina Karitas án titils í jólagjöf þegar hún kom út og var svo mánuð á biðlista á bókasafninu eftir þessari bók. Hún er lengri en hin en alveg frábærlega vel skrifuð (þó ég sé nú enginn bókmenntafræðingur). Ég var reyndar pínu pirruð á henni Karitas vinkonu minni stundum en það breytir ekki áliti mínu á bókinni.

Í gærkvöldi fór ég svo í fyrsta tímann á byrjendanámskeiði í jóga. Ég þorði ekki ein og því eru Þórdís systir (hey sys; ekkert blogg, enginn linkur) og Bjútífúl B með mér til halds og trausts :) Það var voða notalegt hjá okkur. Mæli með Jóga hjá Ástu Arnardóttur enda gömul vinkona Einars frænda míns og hann valdi sér nú ekki vini af verri gerðinni. Læt fylgja með vísu sem hann orti og er á heimasíðu Lótus jógaseturs.

„Í Lótusnum mér líður vel
lækur hugans hjalar
útvíkkast mitt andans þel
og innri köttur malar"- E.K.E.
Ég er ekki frá því að mér hafi liðið einmitt svona í gær :)

miðvikudagur, 27. ágúst 2008

Leðurbrúðkaup


Í dag eru þrjú ár síðan við skötuhjúin giftum okkur. Af því tilefni lögðu 30 þúsund manns leið sína í miðbæ Reykjavíkur og hylltu okkur. Páll Óskar söng og forseti Íslands, ríkisstjórnin og borgarstjórinn mættu. Sérstakur heiðursgestur var svo Valgeir Guðjónsson sem söng "Við gerum okkar besta" því Guð einn veit að við Magnús erum alltaf að gera okkar besta. Rúsínan í pylsuendanum var svo þegar handboltalandsliðið kom og sýndi okkur silfurmedalíuna sína. Aldeilis skemmtilegt verð ég nú að segja.

Í kvöld ætlum við Magnús svo að klæða okkur í leðurdressið okkar.

fimmtudagur, 21. ágúst 2008

Áfram Ísland

Jú á morgun verða búðir lokaðar og göturnar tómar. Allir að horfa á leikinn. Við í nýju vinnunni minni ætlum að fjölmenna og horfa á leikinn á e-m stað í Kópavogi sem ég man ekki hvað heitir. Veit ekkert hvað snýr upp og niður þarna í Kópavogi. Efast þó ekki um að það sé gott að búa í Kópavogi.

Gerist kraftaverk á morgun? Verður Ísland ólympíumeistarar í Handbolta? Það væri svo sem gaman að geta montað sig af öðru en að hafa unnið B keppni fyrir bráðum 20 árum.

En allavega Áfram Ísland.

föstudagur, 15. ágúst 2008

Allt að gerast.

Ég er ekki bara búin að sjá Mamma mia í bíó heldur tókum við systur og Iddý frænka þetta alla leið og fórum á Sing- A-Long sýningu á myndinni í gær. Þetta var fyndnasta stemmning sem ég hef upplifað held ég bara. Fullur bíósalur af söngþyrstum konum og fjórum karlmönnum sem eru hetjur í mínum augum fyrir að hafa þorað. Jú jú það var gaman að syngja með því ég þurfti oft að bíta ansi fast í tunguna á mér til að fara ekki að syngja með þegar ég sá myndina í fyrra skiptið. En ég fékk ansi oft kjánahroll þegar salurinn þurfti að ærast þegar karlmaður sást á tjaldinu. Ég var líka að verða vitlaus yfir því að allir þurftu að klappa í takt (eða ekki í takt) í öllum lögum og það á tvöföldum hraða.

En nóg um það: Ég byrjaði í nýju vinnunni minni í dag. Var alveg búin að gleyma hvernig er að vera þessi nýji á vinnustaðnum, þekkja engan og vita bókstaflega ekki neitt í sinn haus. En þetta er spennó :)

Júlíana er svo loksins að fá herbergi en verður að deilda því með stóru systur í bili. Stelpurnar ætla því að vera saman í herberginu niðri og við hjónin að hafa það næs á loftinu. Það standa því yfir breytingar í Nóatúninu, erum að hugsa um að snúa stofunni við líka.

sunnudagur, 3. ágúst 2008

Humarskipið

Fórum út að borða í Humarskipið í gær með tvo ameríkana. Júlíana fékk myndavélina lánaða og tók myndir af hópnum.







fimmtudagur, 31. júlí 2008

Dallas...

Þegar okkur hjónum leiðist höfum við stundum tekið upp á því að horfa á einn og einn Dallas þátt en okkur áskotnaðist ein sería af þáttunum á DVD.
Eini sinni voru þetta uppáhaldsþættirnir mínir og svo mikið í uppáhaldi að ég afboðaði mig út í leiki eins og kossinn inn og kossinn út o.s.frv. með skólafélögunum á miðvikudagskvöldum þegar Dallas var sýnt.
Það fer enn í taugarnar á mér þegar Bobby hvíslar en J.R. stendur alltaf fyrir sínu.

sunnudagur, 6. júlí 2008

Húsdýragarðurinn

Fórum í Húsdýragarðinn í dag með Berta, Jónu og Stellu. Tókum með okkur pylsur og grilluðum. Það sem stóð upp úr hjá Júlíönu var að hoppa á hoppudýnunni.

En merkisatburður átti sér stað hjá Júlíönu því við ákváðum í sameiningu að nú væri kominn tími á að hætta með snuð. Snuðin (20 talsins) voru því sett í poka með bleikri slaufu og hengd á hurð í Húsdýragarðinum í þeirri trú um að kálfarnir fái snuðin. Það verður því fróðlegt að sjá næstu daga hvernig lífið hjá Júlíönu gengur í snudduleysinu. Sú var jú snuddusjúk eins og hún segir sjálf. Þetta er jú framför í móðurleggnum því mamman hætti með snuð um sex ára aldur, Hildur var fjögurra ára og Júlíana tveggja.

Bæjarferð.

Fórum í bæjarferð í gær. Röltum í miðbænum og fórum í Kolaportið. Keyptum laugardagsnammi en gleymdum að kaupa okkur harðfisk í Kolaportinu.
Fyrst það var búið að spá hitabylgju um helgina ákváðum við að grilla samt þó það væri ekki hitabylgja. Fórum því í Krónuna og keyptum okkur á grillið. Mesta sportið er að fá litla innkaupakörfu og fá að hjálpa foreldrunum við að týna grillmatinn ofan í. Tek það fram að við grilluðum Stellu samt ekki.

þriðjudagur, 17. júní 2008

Gleðilegan þjóðhátíðardag

Já það er alltaf gaman á 17. júní. Hildur er í sumarbúðstað með ömmu sinni í góðu yfirlæti sjálfsagt þannig að við hjónin örkuðum í bæinn ásamt Júlíönu og afanum. Júlíana fékk fána og blöðru sem er ekki fokin ennþá. Við sáum fullt af blöðrum renna úr greipum eigenda sinna með tilheyrandi táraflóði. Á blöðrunni hennar Júlíönu stendur Happy Birthday sem er afskaplega viðeigandi þar sem þjóðhátíðardagurinn er afmælisdagur ömmu hennar. En ég veit ekki hversu viðeigandi var að sópa göturnar með fánanum. Kvöldið fór því í það að fara yfir fánalögin með stúlkunni. Hún lofaði að fara betur með fánann að ári.