miðvikudagur, 27. ágúst 2008

Leðurbrúðkaup


Í dag eru þrjú ár síðan við skötuhjúin giftum okkur. Af því tilefni lögðu 30 þúsund manns leið sína í miðbæ Reykjavíkur og hylltu okkur. Páll Óskar söng og forseti Íslands, ríkisstjórnin og borgarstjórinn mættu. Sérstakur heiðursgestur var svo Valgeir Guðjónsson sem söng "Við gerum okkar besta" því Guð einn veit að við Magnús erum alltaf að gera okkar besta. Rúsínan í pylsuendanum var svo þegar handboltalandsliðið kom og sýndi okkur silfurmedalíuna sína. Aldeilis skemmtilegt verð ég nú að segja.

Í kvöld ætlum við Magnús svo að klæða okkur í leðurdressið okkar.

8 ummæli:

Unknown sagði...

gott hjá ykkur !
HÚRRA FYRIR HJÓNAKORNUNUM
Kveðja

Þórdís sagði...

Til hamingju með leddarann snúllurnar mínar.

Góð mynd af þér Maggi.

Jóna Karen sagði...

Vel gift! Til hamingju með árin þrjú.

Nafnlaus sagði...

til hammara með leddara

sadó masó afmælið muahahahah

Nafnlaus sagði...

Frábært hjá ykkur og til hamingju.
Ég var líka í bænum í tilefni dagsins :)

Nafnlaus sagði...

Maggi var nú varla svona hress á svipinn þegar hann komst að því að honum var ekki boðið í frænkuboðið.

Rassabollur sagði...

Til hamingju!
Ég held að ég hafi aldrei séð jafn glaðan brúðguma og á þessari mynd...

Silja sagði...

Hann er ennþá svona á svipinn þessi elska :)