þriðjudagur, 17. júní 2008

Gleðilegan þjóðhátíðardag

Já það er alltaf gaman á 17. júní. Hildur er í sumarbúðstað með ömmu sinni í góðu yfirlæti sjálfsagt þannig að við hjónin örkuðum í bæinn ásamt Júlíönu og afanum. Júlíana fékk fána og blöðru sem er ekki fokin ennþá. Við sáum fullt af blöðrum renna úr greipum eigenda sinna með tilheyrandi táraflóði. Á blöðrunni hennar Júlíönu stendur Happy Birthday sem er afskaplega viðeigandi þar sem þjóðhátíðardagurinn er afmælisdagur ömmu hennar. En ég veit ekki hversu viðeigandi var að sópa göturnar með fánanum. Kvöldið fór því í það að fara yfir fánalögin með stúlkunni. Hún lofaði að fara betur með fánann að ári.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

HAHA :)

Rassabollur sagði...

Hæ hæ og gaman að sjá bloggið ykkar.
Hlakka til að lesa og láta létta mér lund með skemmtilegum pistlum.