Fórum í bæjarferð í gær. Röltum í miðbænum og fórum í Kolaportið. Keyptum laugardagsnammi en gleymdum að kaupa okkur harðfisk í Kolaportinu.
Fyrst það var búið að spá hitabylgju um helgina ákváðum við að grilla samt þó það væri ekki hitabylgja. Fórum því í Krónuna og keyptum okkur á grillið. Mesta sportið er að fá litla innkaupakörfu og fá að hjálpa foreldrunum við að týna grillmatinn ofan í. Tek það fram að við grilluðum Stellu samt ekki.
3 ummæli:
Haha, þetta minnti mig á það þegar þú ætlaðir að grilla Sindra en pabba fannst það ekkert sniðugt.
Ps: þú ert rosa dugleg að blogga :)
"No comment"
Hehe einmitt það sem ég var að rifja upp þegar ég skrifaði þetta.
Silja: pabbi eigum við að setja Sindra á grillið?
Pabbi (mjög alvarlegur á svip): Nei Silja mín enga vitleysu.
Skrifa ummæli