Sýnir færslur með efnisorðinu Bækur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Bækur. Sýna allar færslur

þriðjudagur, 9. september 2008

Óreiða á striga en engin óreiða í jóga.

Var að klára þessa bók og ég er ástfangin af Kristínu Marju Baldursdóttur. Ég fékk fyrri bókina Karitas án titils í jólagjöf þegar hún kom út og var svo mánuð á biðlista á bókasafninu eftir þessari bók. Hún er lengri en hin en alveg frábærlega vel skrifuð (þó ég sé nú enginn bókmenntafræðingur). Ég var reyndar pínu pirruð á henni Karitas vinkonu minni stundum en það breytir ekki áliti mínu á bókinni.

Í gærkvöldi fór ég svo í fyrsta tímann á byrjendanámskeiði í jóga. Ég þorði ekki ein og því eru Þórdís systir (hey sys; ekkert blogg, enginn linkur) og Bjútífúl B með mér til halds og trausts :) Það var voða notalegt hjá okkur. Mæli með Jóga hjá Ástu Arnardóttur enda gömul vinkona Einars frænda míns og hann valdi sér nú ekki vini af verri gerðinni. Læt fylgja með vísu sem hann orti og er á heimasíðu Lótus jógaseturs.

„Í Lótusnum mér líður vel
lækur hugans hjalar
útvíkkast mitt andans þel
og innri köttur malar"- E.K.E.
Ég er ekki frá því að mér hafi liðið einmitt svona í gær :)

þriðjudagur, 15. júlí 2008

Kona fer til læknis

Í síðustu viku fór ég í heimsókn til systur minnar sem er svo sem ekkert merkilegt nema hvað að hún lætur mig hafa þessa bók og skipar mér að lesa hana. Ég sagðist sjaldan nenna að lesa á sumrin en hún sannfærði mig um að ef ég byrjaði á þessari myndi ég ekki leggja hana frá mér. Þannig að ég gerði undantekningu á sumarhefð minni í lestri og hóf lestur á þessari bók. Og það var satt ég kvaldist þegar ég þurfti að leggja hana frá mér á kvöldin þegar klukkan var að nálgast morgun.
Mæli með þessari fyrir alla, konur og karla.
Ýtið á myndina til að fá nánari upplýsingar um bókina.