Ég stóð á gervigrasinu í Laugardal bróður partinn af deginum og horfði á æfingaleik Vals og Þróttar. Þar sem ég var í yndislegu Cintamani gönguskónum mínum var mér frekar heitt á tánum. Það er ótrúlega gaman að fylgjast með framförum stelpnanna frá degi til dags og harkan í boltanum verður alltaf meiri.
Læt hér fylgja með tvær valsaramyndir teknar 6. nóvember á 10 ára afmælisdegi Hildar. Hildur og Kristjana nýkomnar af æfingu og leggja sig oft fram við að vera eins klæddar. Á seinni myndinni er Hildur að þakka vinkonu sinni fyrir afmælisgjöfina, frekar sætar :)
