Ég er ekki bara búin að sjá Mamma mia í bíó heldur tókum við systur og Iddý frænka þetta alla leið og fórum á Sing- A-Long sýningu á myndinni í gær. Þetta var fyndnasta stemmning sem ég hef upplifað held ég bara. Fullur bíósalur af söngþyrstum konum og fjórum karlmönnum sem eru hetjur í mínum augum fyrir að hafa þorað. Jú jú það var gaman að syngja með því ég þurfti oft að bíta ansi fast í tunguna á mér til að fara ekki að syngja með þegar ég sá myndina í fyrra skiptið. En ég fékk ansi oft kjánahroll þegar salurinn þurfti að ærast þegar karlmaður sást á tjaldinu. Ég var líka að verða vitlaus yfir því að allir þurftu að klappa í takt (eða ekki í takt) í öllum lögum og það á tvöföldum hraða.
En nóg um það: Ég byrjaði í nýju vinnunni minni í dag. Var alveg búin að gleyma hvernig er að vera þessi nýji á vinnustaðnum, þekkja engan og vita bókstaflega ekki neitt í sinn haus. En þetta er spennó :)
Júlíana er svo loksins að fá herbergi en verður að deilda því með stóru systur í bili. Stelpurnar ætla því að vera saman í herberginu niðri og við hjónin að hafa það næs á loftinu. Það standa því yfir breytingar í Nóatúninu, erum að hugsa um að snúa stofunni við líka.
föstudagur, 15. ágúst 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
I´m nothing special, in fact, i´m a bit of a bore....dúdúdúdúdúbbí...dúúúúúú
Úff ég er ennþá að ná mér sko.
Úff, ég er mjög fegin að hafa ekki farið með :).. hefði pottþétt skriðið undir stól.. Annars þarf maður að fara að kíkja á breytingarnar hjá ykkur hjónum...
Skrifa ummæli