miðvikudagur, 12. nóvember 2008

Bylgjubáturinn

Ég hlusta nú ekki oft á útvarpsstöðina Bylgjuna en set stundum á hana ef ég er ein í bílnum og vonast til að hitta á eitthvað skemmtilegt lag til syngja hástöfum með. Í gærkvöldi var ég á heimleið í bílnum mínum og freista þess að hitta á eitthvað gott lag á Bylgjunni. Ég lendi á einhverjum ömurlegum útvarpsmanni sem aldrei fyrr. En mér varð allri lokið þegar hann lét út úr sér: "Til hamingju með að vera með okkur hér í kvöld, það er svo æðislegt að vera hér um borð í Bylgjubátnum."
Bylgjubátnum.....hvað er það??

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er eitthvað sjúklega hresst fyrirbæri :D

Maggi sagði...

"Bylgjubáturinn" veldur óeðlilega mikilli vanlíðan: eyrnaskaða, ógleði, stífkrampa, blindu, tannskemmdum, óeðlilegri lykt í nefi, naglasýkingum, augnbrúnamissi og limafallssýki. Þetta er svona í grófum dráttum ástæðan fyrir því að ég álít Bylgjuna algeran VIÐBJÓÐ.

-MÁ