sunnudagur, 28. september 2008

Tvö frekar sæt...

... í afmæliskaffi hjá Stellu frænku. Föðurbróðirinn með frekar flotta greiðslu.

þriðjudagur, 23. september 2008

Skutlustarfið.

Einu sinni streymdu allar skutlurnar í flugfreyjustarfið en núna virðast allar skutlur verða veðurfræðingar. Þegar ég var lítil voru allir veðurfræðingar gamlir og gráir karlmenn nema Unnur Þórarins kona.

sunnudagur, 21. september 2008

Uppskeruhátíð

Í dag var uppskeruhátíð yngri flokka í knattspyrnu hjá Val. Þar er farið yfir gengi flokka í keppnum sumarsins og sumir fá sérstaka viðurkenningu. Í hverjum flokki eru veittar þrjár viðurkenningar: Fyrir mestar framfarir, bestu ástundun og svo leikmaður flokksins. Í fyrra fékk Hildur viðurkenningu fyrir mestar framfarir og í dag fékk hún aftur viðurkenningu og nú fyrir bestu ástundun. Hér er hún ásamt Lóu (til vinstri) sem fékk viðurkenningu fyrir mestar framfarir og Agnesi (í miðjunni) sem var valin leikmaður flokksins. Fyrir aftan eru Lea Sif þjálfari og Silla aðstoðarþjálfari.
Eftir hátíðina spurði ég Hildi hvort hún vissi fyrir hvað hún var að fá viðurkenningu, hún var fljót að svara "neibb".

laugardagur, 20. september 2008

Síðustu dagar...

Stella varð eins árs þann 18. september. Þá eru bara tveir mánuðir í að Júlíana verði þriggja ára. Júlíana gaf henni þennan pakka sem hún var mjög stolt af. Í pakkanum var taska og bleikur farsími.Eva amma kom frá útlöndum fyrir stuttu eftir tveggja vikna dvöl og gaf Júlíönu snyrtidót en það hefur lengi verið draumur JM að eignast sinn eigin gloss.Hér er svo Hildur Karitas tilbúin að fara leiða leikmenn KR inn á völlinn í bikarúrslitaleik á milli Vals og KR sem var í dag, ræðum ekki úrslit leiksins frekar. Á morgun er svo uppskeruhátíð knattspyrnudeildar Vals og eftir það er stúlkan komin upp í 5. flokk.

föstudagur, 12. september 2008

Við hjónin

...og fyrir nokkrum kílóum síðan :)
Check it out

þriðjudagur, 9. september 2008

Óreiða á striga en engin óreiða í jóga.

Var að klára þessa bók og ég er ástfangin af Kristínu Marju Baldursdóttur. Ég fékk fyrri bókina Karitas án titils í jólagjöf þegar hún kom út og var svo mánuð á biðlista á bókasafninu eftir þessari bók. Hún er lengri en hin en alveg frábærlega vel skrifuð (þó ég sé nú enginn bókmenntafræðingur). Ég var reyndar pínu pirruð á henni Karitas vinkonu minni stundum en það breytir ekki áliti mínu á bókinni.

Í gærkvöldi fór ég svo í fyrsta tímann á byrjendanámskeiði í jóga. Ég þorði ekki ein og því eru Þórdís systir (hey sys; ekkert blogg, enginn linkur) og Bjútífúl B með mér til halds og trausts :) Það var voða notalegt hjá okkur. Mæli með Jóga hjá Ástu Arnardóttur enda gömul vinkona Einars frænda míns og hann valdi sér nú ekki vini af verri gerðinni. Læt fylgja með vísu sem hann orti og er á heimasíðu Lótus jógaseturs.

„Í Lótusnum mér líður vel
lækur hugans hjalar
útvíkkast mitt andans þel
og innri köttur malar"- E.K.E.
Ég er ekki frá því að mér hafi liðið einmitt svona í gær :)

laugardagur, 6. september 2008

miðvikudagur, 3. september 2008

Svona gerist þegar maður hættir að sofa í leikskólanum :)


Að fá sér melónubita eftir leikskóla :)

mánudagur, 1. september 2008

Allt að gerast.

Þá er að komast á hversdagsleg rútína á heimilinu. Hildur var spennt að byrja í sínum skóla enda að fá nýjan kennara og að byrja í 5. bekk. Daginn fyrir fyrsta skóladaginn sagðist hún hlakka svo til að byrja í skólanum. Guðmundi mági mínum sem er ári eldri en Hildur fannst frekar skrítið að hún hlakkaði til að fara í skólann enda allt frekar glatað í hans augum eða "fatlað" eins og hann orðað það svo skemmtilega.
Ég var líka spennt að byrja í mínum skóla enda líka að byrja í 5. bekk eða með 5. bekk. Það er strembið en mjög gaman.
Júlíana er byrjuð á Holti og er því ekki lengur á yngstu deildinni. Hún er líka sæl og ánægð, ákvað að hætta að leggja sig á daginn og er því misskemmtileg seinni part dags. Hún er skæð í að smygla með sér dóti og drasli í leikskólann. Tókst að plata pabba sinn upp úr skónum í morgun og tók með sér bleikan pæjusíma. Fékk svo símhringingar á leikskólalóðinni og vakti mikla lukku meðal skólafélaga sinna. Það verður sem sagt farið í alla hennar vasa, inn undir nærskyrtu og ofan í sokka í fyrramálið.
Minn ektamaður er að fara á fullt í trommukennslu þannig að það verður nóg að gera hjá öllum í vetur.