Sýnir færslur með efnisorðinu daglegt líf. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu daglegt líf. Sýna allar færslur

miðvikudagur, 12. maí 2010

þriðjudagur, 2. mars 2010

...og meiri snjór



Nú fyrst að snjórinn kom loksins þá koma hér fleiri myndir.
"Snjóar líka á Leifsgötu" sagði Júlíana þegar hún sá snjókomuna og var þá hugsað til Arngunnar vinkonu sinnar sem býr í Leifsgötu.
Posted by Picasa

laugardagur, 27. febrúar 2010

Það snjóar


Eva Guðrún að fara út í snjóinn í fyrsta skipti og var hæstánægð :)
Posted by Picasa

föstudagur, 5. júní 2009

Maí

Jæja loksins drógum við upp myndavélina og fórum að taka myndir aftur eftir smá lægð...
Hér koma nokkrar maímyndir :)

Friðrik Sindri, Stella og Júlíana í blíðviðri á Klambratúni.

Skelltum okkur í Húsdýragarðinn og sáum "live" fæðingu hjá svínamömmmu.

Frænkur að dunda sér í húsdýragarðinum.


Tengdó fimmtug og er hér að knúsa númer 3 og 4.

föstudagur, 14. nóvember 2008

Framundan

Hildur er að fara á Laugarvatn í dag í æfingabúðir með Val. Hún er frekar spennt. Í næstu viku er hún búin að panta að elda eitt kvöldið. Það verða glaðar kartöflur í matinn :)
Við hin sem verðum eftir heima ætlum að hafa það huggulegt og mótmæla á Austurvelli á morgun, ætla ekki allir að mæta?
Júlíana er orðin frekar spennt að verða þriggja ára. Hún er búin að bíða eftir afmælinu sínu í marga mánuði og loks rennur dagurinn upp þriðjudaginn 18. nóv. Við gerðum afmæliskeðju og hún er búin að fjarlægja einn hlekk af keðjunni á dag. Það eru ansi fáir eftir. Dúkkuvagninn bíður undir rúmi tilbúinn í innpökkun. Hún er búin að lýsa því yfir að hana langi í dúkkur og dúkkudót. Hún sá tvíburadúkkur í Toys R us fyrir löngu síðan og heillaðist mjög. Þá kostuðu herlegheitin um 8.000. Þegar ég fór svo aftur í sömu búð ekki fyrir löngu höfðu tvíburarnir hækkað um helming og kostuðu 15.999.

fimmtudagur, 30. október 2008

Ísland - Írland

Ég er í vetrarfríi og við fjölskyldan ætluðum norður í dag. En klósettið okkar ævaforna er að hrynja í sundur og því verður helginni eytt í að laga baðherbergið.

Ljósi punkturinn í þessu öllu saman (fyrir utan að fá nýtt klósett) er að við Hildur komumst á völlinn í kvöld :)

Áfram Ísland.

fimmtudagur, 2. október 2008

Vetur vetur kominn er...

...eins og við sungum á Klömbrum.
Eins gott að ég keypti mér nýja úlpu í dag. Og nei hún er ekki frá 66°Norður. Hvað er málið með að selja úlpu á tæp 50 þúsund?

Í tilefni af snjó læt ég fylgja með eina krúttlega snjómynd af JM. Tekin í jan 07.

mánudagur, 1. september 2008

Allt að gerast.

Þá er að komast á hversdagsleg rútína á heimilinu. Hildur var spennt að byrja í sínum skóla enda að fá nýjan kennara og að byrja í 5. bekk. Daginn fyrir fyrsta skóladaginn sagðist hún hlakka svo til að byrja í skólanum. Guðmundi mági mínum sem er ári eldri en Hildur fannst frekar skrítið að hún hlakkaði til að fara í skólann enda allt frekar glatað í hans augum eða "fatlað" eins og hann orðað það svo skemmtilega.
Ég var líka spennt að byrja í mínum skóla enda líka að byrja í 5. bekk eða með 5. bekk. Það er strembið en mjög gaman.
Júlíana er byrjuð á Holti og er því ekki lengur á yngstu deildinni. Hún er líka sæl og ánægð, ákvað að hætta að leggja sig á daginn og er því misskemmtileg seinni part dags. Hún er skæð í að smygla með sér dóti og drasli í leikskólann. Tókst að plata pabba sinn upp úr skónum í morgun og tók með sér bleikan pæjusíma. Fékk svo símhringingar á leikskólalóðinni og vakti mikla lukku meðal skólafélaga sinna. Það verður sem sagt farið í alla hennar vasa, inn undir nærskyrtu og ofan í sokka í fyrramálið.
Minn ektamaður er að fara á fullt í trommukennslu þannig að það verður nóg að gera hjá öllum í vetur.

föstudagur, 15. ágúst 2008

Allt að gerast.

Ég er ekki bara búin að sjá Mamma mia í bíó heldur tókum við systur og Iddý frænka þetta alla leið og fórum á Sing- A-Long sýningu á myndinni í gær. Þetta var fyndnasta stemmning sem ég hef upplifað held ég bara. Fullur bíósalur af söngþyrstum konum og fjórum karlmönnum sem eru hetjur í mínum augum fyrir að hafa þorað. Jú jú það var gaman að syngja með því ég þurfti oft að bíta ansi fast í tunguna á mér til að fara ekki að syngja með þegar ég sá myndina í fyrra skiptið. En ég fékk ansi oft kjánahroll þegar salurinn þurfti að ærast þegar karlmaður sást á tjaldinu. Ég var líka að verða vitlaus yfir því að allir þurftu að klappa í takt (eða ekki í takt) í öllum lögum og það á tvöföldum hraða.

En nóg um það: Ég byrjaði í nýju vinnunni minni í dag. Var alveg búin að gleyma hvernig er að vera þessi nýji á vinnustaðnum, þekkja engan og vita bókstaflega ekki neitt í sinn haus. En þetta er spennó :)

Júlíana er svo loksins að fá herbergi en verður að deilda því með stóru systur í bili. Stelpurnar ætla því að vera saman í herberginu niðri og við hjónin að hafa það næs á loftinu. Það standa því yfir breytingar í Nóatúninu, erum að hugsa um að snúa stofunni við líka.

sunnudagur, 3. ágúst 2008

Humarskipið

Fórum út að borða í Humarskipið í gær með tvo ameríkana. Júlíana fékk myndavélina lánaða og tók myndir af hópnum.







föstudagur, 27. júní 2008

Þá er það komið á hreint...


... ég hef sagt starfi mínu á Klömbrum upp og skrifaði undir ráðningarsamning við Kársnesskóla í dag. Þar mun ég vera umsjónarkennari 5. bekkjar næsta vetur. Spennó :)

Sem betur fer segi ég ekki alveg skilið við Klambra því að Júlíana heldur áfram þar og heldur heiðri okkar mæðgna á lofti.

mánudagur, 23. júní 2008

Ágrip helgarinnar meðal annars.

Var að reyna að setja inn video af þeim systrum að syngja Bahama lagið sem er að gera allt vitlaust í sumar en það tókst eitthvað brösulega, kemur kannski seinna.
Ég fór í húsmæðraorlof til Akureyrar um helgina. Hitti þar gamla skólafélaga síðan í Gagnfræðaskóla Akureyrar en það eru 15 ár síðan maður kláraði grunnskólagöngu sína. Þetta var ótrúlega gaman þó að mætingin hafi verið slök, alltaf gaman samt að hitta gömlu félagana og að sjálfssögðu að koma til Akureyrar :)
Annars vorum við mæðgur úti í garði fram að kvöldmat, ekki týmdum við að fara inn úr sólinni. Júlíana verður svo alltaf jafn hissa þegar sagt er við hana að hún eigi að fara að sofa. "En það er ekki nótt". En við búum til okkar nótt inni í svefnherbergi með myrkratjöldum og svörtum ruslapokum yfir... steinliggur. Sú litla fær sér alltaf volga mjólk fyrir svefninn eins og gamla fólkið og í kvöld var það pabbinn sem var kallað á og beðinn um að færa henni mjólk í rúmið. Sú litla hlustar svo eftir því hvort mjólkin fari ekki örugglega í örbylgjuofninn og veit upp á hár hvað hún á að vera lengi. Ef hún er of stutt þá verður hún ekki sátt. En pabbinn kom með mjólkina inn til okkar og við kláruðum sögu kvöldsins sem var Gullbrá og birnirnir þrír. Júlíana heyrir svo pabba sinn ýta á takka á örbylgjuofninum frammi og segir: "Nú var pabbi að ýta á bláa takkann" sem var jú alveg rétt hjá henni. Hún bætir svo við: "Hann pabbi er alltaf að fikta".

þriðjudagur, 17. júní 2008

Gleðilegan þjóðhátíðardag

Já það er alltaf gaman á 17. júní. Hildur er í sumarbúðstað með ömmu sinni í góðu yfirlæti sjálfsagt þannig að við hjónin örkuðum í bæinn ásamt Júlíönu og afanum. Júlíana fékk fána og blöðru sem er ekki fokin ennþá. Við sáum fullt af blöðrum renna úr greipum eigenda sinna með tilheyrandi táraflóði. Á blöðrunni hennar Júlíönu stendur Happy Birthday sem er afskaplega viðeigandi þar sem þjóðhátíðardagurinn er afmælisdagur ömmu hennar. En ég veit ekki hversu viðeigandi var að sópa göturnar með fánanum. Kvöldið fór því í það að fara yfir fánalögin með stúlkunni. Hún lofaði að fara betur með fánann að ári.