Nokkur gullkorn sem hafa borist frá JM síðustu daga:
JM: Mamma má ég fá opal?
Móðirin: Nei nei nei það er ekki nammidagur í dag.
JM: Já en ég er þriggja ára.
Langafi og langamma Júlíönu eru í bænum og halda til hjá tengdamóður minni. Við vorum í heimsókn og langafi skellti sér í bað og kom fram í buxum en ber að ofan. Júlíana gekk þá að honum og sagði: "Afi, ertu eitthvað klikkaður?"
Júlíana var búin að ákveða að bjóða Arngunni vinkonu sinni af leikskólanum í afmælið sitt. Einhver staðar lærði hún samt nýlega þennan ömurlega frasa "þú mátt ekki koma í afmælið mitt" og notar hann óspart ef við hin á heimilinu högum okkur ekki samkvæmt hennar bókum.
Móðirin: Júlíana, mamma hennar Arngunnar sagði að þær kæmust í afmælið þitt.
Júlíana öfugsnúna: Nei Arngunnur má ekki koma í afmælið mitt.
Móðirin: Jú auðvitað má Arngunnur vinkona þín koma í afmælið þitt.
JM: Nei mamma manstu ekki, það er ekki pláss. Langafi og langamma ætla að koma.
Já svo er nú það...
föstudagur, 21. nóvember 2008
þriðjudagur, 18. nóvember 2008
föstudagur, 14. nóvember 2008
Framundan
Hildur er að fara á Laugarvatn í dag í æfingabúðir með Val. Hún er frekar spennt. Í næstu viku er hún búin að panta að elda eitt kvöldið. Það verða glaðar kartöflur í matinn :)
Við hin sem verðum eftir heima ætlum að hafa það huggulegt og mótmæla á Austurvelli á morgun, ætla ekki allir að mæta?
Júlíana er orðin frekar spennt að verða þriggja ára. Hún er búin að bíða eftir afmælinu sínu í marga mánuði og loks rennur dagurinn upp þriðjudaginn 18. nóv. Við gerðum afmæliskeðju og hún er búin að fjarlægja einn hlekk af keðjunni á dag. Það eru ansi fáir eftir. Dúkkuvagninn bíður undir rúmi tilbúinn í innpökkun. Hún er búin að lýsa því yfir að hana langi í dúkkur og dúkkudót. Hún sá tvíburadúkkur í Toys R us fyrir löngu síðan og heillaðist mjög. Þá kostuðu herlegheitin um 8.000. Þegar ég fór svo aftur í sömu búð ekki fyrir löngu höfðu tvíburarnir hækkað um helming og kostuðu 15.999.

miðvikudagur, 12. nóvember 2008
Bylgjubáturinn
Ég hlusta nú ekki oft á útvarpsstöðina Bylgjuna en set stundum á hana ef ég er ein í bílnum og vonast til að hitta á eitthvað skemmtilegt lag til syngja hástöfum með. Í gærkvöldi var ég á heimleið í bílnum mínum og freista þess að hitta á eitthvað gott lag á Bylgjunni. Ég lendi á einhverjum ömurlegum útvarpsmanni sem aldrei fyrr. En mér varð allri lokið þegar hann lét út úr sér: "Til hamingju með að vera með okkur hér í kvöld, það er svo æðislegt að vera hér um borð í Bylgjubátnum."
Bylgjubátnum.....hvað er það??
Bylgjubátnum.....hvað er það??
fimmtudagur, 6. nóvember 2008
Þessi elska er 10 ára í dag.
laugardagur, 1. nóvember 2008
Klukk
Ég hef nú gert svona áður að mig minnir þegar klukkið tröllreið íslenskum bloggsíðum.
Var klukkuð af Aðalheiði Rósu í þetta sinn.
1. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Saug munnvatn fólks á Tannlæknastofu Steinars föður míns.
Steikti ófáa hamborgara í Ak- Inn (gellunesti) á Akureyri.
Var einu sinni bankastarfsmaður í Íslandsbanka.
Leikskólakennari á Klömbrum.
2. Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held upp á:
Með allt á hreinu.
Englar alheimsins.
Brúðguminn.
Er nýbúin að sjá Reykjavík Rotterdam, hún er ansi góð.
3. Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Á hinum ýmsu götum á Akureyri.
Bangor, Maine, USA.
Kaupmannahöfn, mjög stutt reyndar.
Kópavogur, jú jú það var ágætt að búa í Kópavogi.
4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
New York, dásemd
Barcelona
London
Hrísey
5. Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Dallas
Grey´s Anatomy
Sex and the city
6. Fjórar síður sem ég skoða daglega:
ruv.is
mentor.is
allskonar blogg
Facebook
7. Fernt sem ég held upp á matarkyns:
Humar
8. Fjórar bækur sem ég hef oft lesið:
Las Öddubækurnar í tætlur á mínum yngri árum.
Er að lesa í annað sinn bókina Perlur og Steinar; Árin með Jökli um hjónaband Jökuls Jakobssonar og Jóhönnu Kristjónsdóttur.
9. Fjórir staðir sem ég myndi helst vilja vera á núna:
Í Central Park, helst af öllu.
En fyrst það er ekki í boði, þá bara í snjónum á Akureyri.
10. Fjórir bloggarar sem ég klukka:
Hildó frænka
Rassabollurnar
Steinunn Inga
Shit, þarf að finna mér fleiri linka.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)