Fórum í Húsdýragarðinn í dag með Berta, Jónu og Stellu. Tókum með okkur pylsur og grilluðum. Það sem stóð upp úr hjá Júlíönu var að hoppa á hoppudýnunni.


En merkisatburður átti sér stað hjá Júlíönu því við ákváðum í sameiningu að nú væri kominn tími á að hætta með snuð. Snuðin (20 talsins) voru því sett í poka með bleikri slaufu og hengd á hurð í Húsdýragarðinum í þeirri trú um að kálfarnir fái snuðin. Það verður því fróðlegt að sjá næstu daga hvernig lífið hjá Júlíönu gengur í snudduleysinu. Sú var jú snuddusjúk eins og hún segir sjálf. Þetta er jú framför í móðurleggnum því mamman hætti með snuð um sex ára aldur, Hildur var fjögurra ára og Júlíana tveggja.
2 ummæli:
DUGLEG Júlíana! Gangi þér vel með þetta snúlla. Ok 6 ára aldur Silja, þú lýgur því náttúrulega blákalt. Var þetta ekki í kringum fermingu? ;)
Var það ekki Silja sem faldi snuð heima hjá ömmu og stalst í það fram eftir öllu... þetta komst ekki upp fyrr en fyrir nokkurm árum ef ég man rétt.
Skrifa ummæli