þriðjudagur, 9. september 2008

Óreiða á striga en engin óreiða í jóga.

Var að klára þessa bók og ég er ástfangin af Kristínu Marju Baldursdóttur. Ég fékk fyrri bókina Karitas án titils í jólagjöf þegar hún kom út og var svo mánuð á biðlista á bókasafninu eftir þessari bók. Hún er lengri en hin en alveg frábærlega vel skrifuð (þó ég sé nú enginn bókmenntafræðingur). Ég var reyndar pínu pirruð á henni Karitas vinkonu minni stundum en það breytir ekki áliti mínu á bókinni.

Í gærkvöldi fór ég svo í fyrsta tímann á byrjendanámskeiði í jóga. Ég þorði ekki ein og því eru Þórdís systir (hey sys; ekkert blogg, enginn linkur) og Bjútífúl B með mér til halds og trausts :) Það var voða notalegt hjá okkur. Mæli með Jóga hjá Ástu Arnardóttur enda gömul vinkona Einars frænda míns og hann valdi sér nú ekki vini af verri gerðinni. Læt fylgja með vísu sem hann orti og er á heimasíðu Lótus jógaseturs.

„Í Lótusnum mér líður vel
lækur hugans hjalar
útvíkkast mitt andans þel
og innri köttur malar"- E.K.E.
Ég er ekki frá því að mér hafi liðið einmitt svona í gær :)

6 ummæli:

Raxel design sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Nafnlaus sagði...

Hvernig gengur með heimaverkefnið? :)

B. fræ

Silja sagði...

Úpps gleymdi alveg að anda í dag. Verð að reyna muna það í morgun. Anda kannski nokkrum sinnum í kvöld :)

Unknown sagði...

Gott hjá ykkur. Jóga er heilsubót líkama og sálar,
kv.

Nafnlaus sagði...

hæ skvís, heyrðu ég á einmitt þessa bók en er ekki alveg byrjuð á henni.. segðu mér eitt fróða fljót, þarf maður að vera búin að lesa fyrri bókina fyrst? ;o)
Kv
Soffía

Silja sagði...

Já mín kæra ég myndi segja að það væri betra að lesa hina bókina fyrst :)