fimmtudagur, 31. júlí 2008

Dallas...

Þegar okkur hjónum leiðist höfum við stundum tekið upp á því að horfa á einn og einn Dallas þátt en okkur áskotnaðist ein sería af þáttunum á DVD.
Eini sinni voru þetta uppáhaldsþættirnir mínir og svo mikið í uppáhaldi að ég afboðaði mig út í leiki eins og kossinn inn og kossinn út o.s.frv. með skólafélögunum á miðvikudagskvöldum þegar Dallas var sýnt.
Það fer enn í taugarnar á mér þegar Bobby hvíslar en J.R. stendur alltaf fyrir sínu.

mánudagur, 28. júlí 2008

Pabbi það er rassalykt af þér....

....var eitt af því fyrsta sem Júlíana sagði við pabba sinn í morgun.
Eitt gott dæmi um það þegar maður heyrir orð sín hljóma úr hennar munni. Mér hættir oft til að segja henni að það komi rassalykt í sófann þegar hún er að spriklast berrössuð í sófanum.

sunnudagur, 27. júlí 2008

Tvær sætar

Hildur var að koma inn úr dyrunum eftir tveggja vikna ferðlag með pabba sínum og fjölskyldu. Litla systir var frekar glöð að sjá stóru systur og þær féllust í faðma og föðmuðust fram eftir kvöldi. Júlíana lét meðal annars þessi fögru orð falla: "Ég er svo glöð að sjá þig", "Það er svo langt síðan ég hef séð þig" og svo að lokum gaf hún systur sinni ofurknús og sagði "ástin mín".

fimmtudagur, 24. júlí 2008

Skorradalur

Vorum að koma úr Skorradal eftir tveggja daga viðveru í sumarbústað. Það var rólegt og afslappandi, mikið étið en skítaveður. Við fórum í pottinn og JM sem tekst alltaf að hafa alla athygli á sér tókst að drekka hálfan pottinn eftir velvalin áhættuatriði og ropaði vel á eftir. Maðurinn minn lagði sama kapalinn 293 sinnum og fékk mikið diss fyrir. Ég var meira í að baka vöfflur.

Fórum í gönguferð í skítaveðrinu og rákumst á þetta skilti. Var mikið að velta fyrir mér hvað sá síðasti í röðinni sem á væntanlega að vera karlmaður er með á bakinu. Eða hvort hann væri bara svona helmassaður.P.S. Mér hlotnaðist sá heiður að fá link á uppáhaldsbloggsíðunni minni og þar sem ekki er gefinn kostur á að commenta á þeirri síðu þakka ég hér með fyrir linkinn.

mánudagur, 21. júlí 2008

Í sumarfríi

Skruppum eina nótt í hjólhýsið sem tengdamóðir mín á í Reykjadal. Það var mjög huggulegt fyrir utan rigningargusu sem við fengum á okkur í Dýragarðinum í Slakka.
Á myndunum eru dóttir mín og mágur. Við gætum líka sagt Júlíana og föðurbróðir hennar :)



þriðjudagur, 15. júlí 2008

Kona fer til læknis

Í síðustu viku fór ég í heimsókn til systur minnar sem er svo sem ekkert merkilegt nema hvað að hún lætur mig hafa þessa bók og skipar mér að lesa hana. Ég sagðist sjaldan nenna að lesa á sumrin en hún sannfærði mig um að ef ég byrjaði á þessari myndi ég ekki leggja hana frá mér. Þannig að ég gerði undantekningu á sumarhefð minni í lestri og hóf lestur á þessari bók. Og það var satt ég kvaldist þegar ég þurfti að leggja hana frá mér á kvöldin þegar klukkan var að nálgast morgun.
Mæli með þessari fyrir alla, konur og karla.
Ýtið á myndina til að fá nánari upplýsingar um bókina.

sunnudagur, 13. júlí 2008

Erfið en skemmtileg helgi á enda.

Það var ljósmyndasamkeppni á Símamótinu þar sem aðstandendur keppenda gátu sent inn myndir. Þessi mynd var í þriðja sæti.
Hildur er með tærnar á boltanum með þrjár Breiðablikskonur á móti sér.
3. sæti, ljósmyndari Viktor Örn Guðlaugsson, bróðir Agnesar Eddu í 6. flokki Vals. Í umsögn dómnefndar segir: „Þessi mynd fangar skemmtilegt augnablik þar sem fast er sótt að boltanum, leikmennirnir eru allir tilbúnir til að ná í boltann. 100% einbeiting í hverju andliti.“
4. sæti , ljósmyndari Viktor Örn Guðlaugsson, bróðir Agnesar Eddu í 6. flokki Vals. Í umsögn dómnefndar segir: „Skemmtileg mynd þar sem Valsarar eru annað hvort að undirbúa sig fyrir komandi átök eða fagna marki. Svipbrigði leikmannanna eru mjög skemmtileg.“

Já það er óhætt að segja að það taki á að standa úti í rigningu heila helgi, í kvíðakasti á línunni og hvetja barnið sitt og liðið hennar áfram. Sérstaklega í þessum æsispennandi leikjum sem þær háðu.
Stelpurnar spiluðu við KA í morgun og töpuðu 2-1. Hildur skoraði mark Valsmanna en þær komu því miður boltanum ekki í markið aftur þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Þær þurftu því að sætta sig við að spila við Fjölni um 3. sætið. Þar náði hvorugt liðið að skora og enduðu því bæði í þriðja sæti. Hildur kom því heim með bronspening. Þær stóðu sig alveg frábærlega. Töpuðu aðeins einum leik við Akureyrarveldið mikla.

Annars er ég komin í sumarfrí :)

laugardagur, 12. júlí 2008

Símamótið

Það sem af er helgi hefur hún farið í að standa og horfa á Hildi spila fótbolta. Í gær var veðrið alveg fínt en í dag var rok og rigning. En þrátt fyrir það unnu stelpurnar sinn riðil með fullt hús stiga, 18 talsins. Þær spila við KA á morgun um 1.- 4. sæti og ef þæri vinna hann spila þær um fyrsta sæti.

Þær spiluðu leik við Breiðablik í gær sem eru með sterkt lið og unnu 3-1. Hildur skoraði 2 mörk og engin önnur en Margrét Lára og fleiri félagar úr meistaraflokki kvenna í Val voru að horfa á. Margrét Lára kom svo til Hildar eftir leikinn og sagði: "Hildur gefðu mér tvö five af því að þú skoraðir tvö mörk". Hildur á örugglega eftir að lifa á þessu lengi :)

mánudagur, 7. júlí 2008

Hvað segir dómarinn þá?

Við mæðgur vorum að horfa á Hildi keppa með 5. flokki Vals í dag. Þær kepptu við Fjölni og unnu 3-0. Hildur skoraði eitt glæsilegt mark. Stelpan var ansi þreytt eftir hlaupin því í 5. flokki er spilað á 1/2 venjulegum fótboltavelli í 2 x 20 mínútur á meðan það er spilað í 2 x 12 mínútur á 1/4 af fótboltavelli í 6. flokki.
Júlíana er öll að koma til sem áhorfandi systur sinnar. Í fyrrasumar hljóp hún oft inn á völlinn í hverjum leik en núna veit hún sín mörk og fer ekki yfir hvítu línuna þó hún eigi mjög erfitt með það stundum. Ég minnti hana samt á reglurnar áðan og sagði henni að það væri bannað að fara yfir hvítu línuna. Hún spurði þá: Hvað segir dómarinn þá? Ég sagði henni að hann yrði ekki ánægður ef við færum inn á völlinn í miðjum leik.
Stuttu eftir að leikurinn byrjaði fann hún plástur í grasinu og ætlaði að stinga upp í sig þegar ég æpti upp og sagði að það væri stranglega bannað að stinga upp í sig gömlum ógeðslegum plástrum sem liggja á víðavangi. Hún var fljót að spyrja: Hvað segir dómarinn þá? Ég sagði henni að dómarinn stæði með mér í þessu máli.
Fimm mínútum síðar fann hún 100 kall í veskinu mínu og hélt á honum og færði hendina í átt að munninum þegar ég minnti hana á að peningar ættu alls ekki að fara í munninn.
JM: Hvað segir dómarinn þá?

sunnudagur, 6. júlí 2008

Húsdýragarðurinn

Fórum í Húsdýragarðinn í dag með Berta, Jónu og Stellu. Tókum með okkur pylsur og grilluðum. Það sem stóð upp úr hjá Júlíönu var að hoppa á hoppudýnunni.

En merkisatburður átti sér stað hjá Júlíönu því við ákváðum í sameiningu að nú væri kominn tími á að hætta með snuð. Snuðin (20 talsins) voru því sett í poka með bleikri slaufu og hengd á hurð í Húsdýragarðinum í þeirri trú um að kálfarnir fái snuðin. Það verður því fróðlegt að sjá næstu daga hvernig lífið hjá Júlíönu gengur í snudduleysinu. Sú var jú snuddusjúk eins og hún segir sjálf. Þetta er jú framför í móðurleggnum því mamman hætti með snuð um sex ára aldur, Hildur var fjögurra ára og Júlíana tveggja.

Bæjarferð.

Fórum í bæjarferð í gær. Röltum í miðbænum og fórum í Kolaportið. Keyptum laugardagsnammi en gleymdum að kaupa okkur harðfisk í Kolaportinu.
Fyrst það var búið að spá hitabylgju um helgina ákváðum við að grilla samt þó það væri ekki hitabylgja. Fórum því í Krónuna og keyptum okkur á grillið. Mesta sportið er að fá litla innkaupakörfu og fá að hjálpa foreldrunum við að týna grillmatinn ofan í. Tek það fram að við grilluðum Stellu samt ekki.

föstudagur, 4. júlí 2008

miðvikudagur, 2. júlí 2008

Leiðin að titlinum.

Þessi hér tók þátt í Hnátumóti KSÍ í gær í hvassviðri. Stelpan spilar með A-liði 6. flokks sem sigruðu alla þrjá leikina sína. Unnu HK 6-0, Fjölni 8-1 og að lokum Stjörnuna 5-0. Liðið spilaði alvöru fótbolta, spiluðu sín á milli eins og þær hafi aldrei gert annað og Hildur raðaði inn mörkum í nýju, rándýru takkaskónum sínum. Myndin hér fyrir neðan sýnir eitt marka hennar í uppsiglingu :) Velgengni stelpnanna þýðir það að þær spila til úrslita um Íslandsmeistaratitil í ágúst.
Helgina 10.-13. júlí er svo Símamót Breiðabliks, já nóg að gera hjá fótboltaforeldrum, en bara gaman :)Hér fylgir svo ein mynd af fröken Júlíönu sem dottaði í kerrunni á leið í heimsókn til ömmu Evu Ásrúnar í dag. Var ekki alveg til í að vakna þó væri búið að planta henni á tröppurnar.