Vorum að koma úr Skorradal eftir tveggja daga viðveru í sumarbústað. Það var rólegt og afslappandi, mikið étið en skítaveður. Við fórum í pottinn og JM sem tekst alltaf að hafa alla athygli á sér tókst að drekka hálfan pottinn eftir velvalin áhættuatriði og ropaði vel á eftir. Maðurinn minn lagði sama kapalinn 293 sinnum og fékk mikið diss fyrir. Ég var meira í að baka vöfflur.
Fórum í gönguferð í skítaveðrinu og rákumst á þetta skilti. Var mikið að velta fyrir mér hvað sá síðasti í röðinni sem á væntanlega að vera karlmaður er með á bakinu. Eða hvort hann væri bara svona helmassaður.

P.S. Mér hlotnaðist sá heiður að fá link á
uppáhaldsbloggsíðunni minni og þar sem ekki er gefinn kostur á að commenta á þeirri síðu þakka ég hér með fyrir linkinn.
3 ummæli:
Hún harðneitar að linka á mitt blogg, það er alveg sama hvað ég bið hana fallega.
Bergþóra fræ
Ég hélt að það væri bannað að linka á þitt blogg.
Varðandi myndina já.
Þetta er bara gott dæmi um kynjamisréttið á þessu landi.
Karlmaðurinn settur í hlutverk asnans sem sér um að draga föggur fjölskyldunnar á hælum hennar.
Barnið leiðir móðurina, gef mér það að hún sé þarna í miðjunni þar sem hún er í pilsi eða jafnvel kjól, haft eins langt frá dýrinu föðursínum.
Hvenær ætli jafnréttinu verði fullnægt? ÆÆÆÆhhh
Skrifa ummæli