Við mæðgur vorum að horfa á Hildi keppa með 5. flokki Vals í dag. Þær kepptu við Fjölni og unnu 3-0. Hildur skoraði eitt glæsilegt mark. Stelpan var ansi þreytt eftir hlaupin því í 5. flokki er spilað á 1/2 venjulegum fótboltavelli í 2 x 20 mínútur á meðan það er spilað í 2 x 12 mínútur á 1/4 af fótboltavelli í 6. flokki.
Júlíana er öll að koma til sem áhorfandi systur sinnar. Í fyrrasumar hljóp hún oft inn á völlinn í hverjum leik en núna veit hún sín mörk og fer ekki yfir hvítu línuna þó hún eigi mjög erfitt með það stundum. Ég minnti hana samt á reglurnar áðan og sagði henni að það væri bannað að fara yfir hvítu línuna. Hún spurði þá: Hvað segir dómarinn þá? Ég sagði henni að hann yrði ekki ánægður ef við færum inn á völlinn í miðjum leik.
Stuttu eftir að leikurinn byrjaði fann hún plástur í grasinu og ætlaði að stinga upp í sig þegar ég æpti upp og sagði að það væri stranglega bannað að stinga upp í sig gömlum ógeðslegum plástrum sem liggja á víðavangi. Hún var fljót að spyrja: Hvað segir dómarinn þá? Ég sagði henni að dómarinn stæði með mér í þessu máli.
Fimm mínútum síðar fann hún 100 kall í veskinu mínu og hélt á honum og færði hendina í átt að munninum þegar ég minnti hana á að peningar ættu alls ekki að fara í munninn.
JM: Hvað segir dómarinn þá?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Er þetta ekki kallað að setja hlutina í samhengi? Gott hjá J.
og auðvitað Hildi og félögum
Skrifa ummæli