þriðjudagur, 15. júlí 2008

Kona fer til læknis

Í síðustu viku fór ég í heimsókn til systur minnar sem er svo sem ekkert merkilegt nema hvað að hún lætur mig hafa þessa bók og skipar mér að lesa hana. Ég sagðist sjaldan nenna að lesa á sumrin en hún sannfærði mig um að ef ég byrjaði á þessari myndi ég ekki leggja hana frá mér. Þannig að ég gerði undantekningu á sumarhefð minni í lestri og hóf lestur á þessari bók. Og það var satt ég kvaldist þegar ég þurfti að leggja hana frá mér á kvöldin þegar klukkan var að nálgast morgun.
Mæli með þessari fyrir alla, konur og karla.
Ýtið á myndina til að fá nánari upplýsingar um bókina.

12 ummæli:

Þórdís sagði...

Ohh, ég vildi að ég væri ekki búin að lesa hana, langar að eiga það eftir!

Einar B. sagði...

Ohh, ég vildi að ég væri búin að lesa hana, langar að vera búinn að því.

Þórdís sagði...

HAHA, bíddu bara, það verður mitt fyrsta verk þegar þú kemur heim að láta þig lesa þessa bók drengur!

Unknown sagði...

Framhaldið kom úr 2008 "Ekkillinn"

Unknown sagði...

Kom "út" átti það að vera, sbr útgáfa
Kv.

Þórdís sagði...

Jújú, The Widower, en hún er ekki komin út á íslensku samt...

Ert þú búinn að lesa þessar bækur pabbi?

Unknown sagði...

Nei Þórdís, en er búinn að panta þá fyrri, fæ hana í næstu (þessari) viku

Silja sagði...

mmmMMMmmm öfunda þig pabbs :)

Nafnlaus sagði...

ég er bara ekki sammála með þessa bók, mér finnst sögumaðurinn sem er eiginmaðurinn í þessu tilfelli ótrúlega leiðinlegur, eigingjarn og bara óþolandi, fegin að þurfa ekki að sitja upp með slíka horkagikki

Nafnlaus sagði...

þetta átti að vera hrokagikki

Þórdís sagði...

Ertu búin með bókina frú Þóra?

Nafnlaus sagði...

ja,