Þessi hér tók þátt í Hnátumóti KSÍ í gær í hvassviðri. Stelpan spilar með A-liði 6. flokks sem sigruðu alla þrjá leikina sína. Unnu HK 6-0, Fjölni 8-1 og að lokum Stjörnuna 5-0. Liðið spilaði alvöru fótbolta, spiluðu sín á milli eins og þær hafi aldrei gert annað og Hildur raðaði inn mörkum í nýju, rándýru takkaskónum sínum. Myndin hér fyrir neðan sýnir eitt marka hennar í uppsiglingu :) Velgengni stelpnanna þýðir það að þær spila til úrslita um Íslandsmeistaratitil í ágúst.Helgina 10.-13. júlí er svo Símamót Breiðabliks, já nóg að gera hjá fótboltaforeldrum, en bara gaman :)
Hér fylgir svo ein mynd af fröken Júlíönu sem dottaði í kerrunni á leið í heimsókn til ömmu Evu Ásrúnar í dag. Var ekki alveg til í að vakna þó væri búið að planta henni á tröppurnar.
3 ummæli:
Hildur er bara FLOTTUST! Ég þarf greinilega að fara að vera duglegri við að mæta á leiki hjá stúlkunni...
Alvörusvipurinn á Hildi sýnir hvað hún tekur þetta alvarlega. Hún kemst langt, flott hjá þér HILDUR, til hamingju....
Um að gera að hvíla sig þegar færi gefst, Júlíana
Skrifa ummæli