Þá er að komast á hversdagsleg rútína á heimilinu. Hildur var spennt að byrja í sínum skóla enda að fá nýjan kennara og að byrja í 5. bekk. Daginn fyrir fyrsta skóladaginn sagðist hún hlakka svo til að byrja í skólanum. Guðmundi mági mínum sem er ári eldri en Hildur fannst frekar skrítið að hún hlakkaði til að fara í skólann enda allt frekar glatað í hans augum eða "fatlað" eins og hann orðað það svo skemmtilega.
Ég var líka spennt að byrja í mínum skóla enda líka að byrja í 5. bekk eða með 5. bekk. Það er strembið en mjög gaman.
Júlíana er byrjuð á Holti og er því ekki lengur á yngstu deildinni. Hún er líka sæl og ánægð, ákvað að hætta að leggja sig á daginn og er því misskemmtileg seinni part dags. Hún er skæð í að smygla með sér dóti og drasli í leikskólann. Tókst að plata pabba sinn upp úr skónum í morgun og tók með sér bleikan pæjusíma. Fékk svo símhringingar á leikskólalóðinni og vakti mikla lukku meðal skólafélaga sinna. Það verður sem sagt farið í alla hennar vasa, inn undir nærskyrtu og ofan í sokka í fyrramálið.
Minn ektamaður er að fara á fullt í trommukennslu þannig að það verður nóg að gera hjá öllum í vetur.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
10 ummæli:
Ég sé að þú ert með sömu meinloku og ég - að skrifa skrítið með í...
Gaman að fylgjast með ykkur. Þú rúllar upp 5. bekk ;)
Meinloka? Hef alltaf skrifað skrítið með í og ætla ekkert að breyta því. Ekki á að skrifa skritið?
Nei hættu nú alveg.
Haha! Nei það á að skrifa skrýtið.
Hehehe það hlaut að vera. Mig grunaði að ég væri að skrifa eitthvað heimskulegt í þessu commenti. Mér finnst fallegra að skrifa skrítið :)
Skrýtin bleia...haha
Magnað hvað kennarar eru góðir í íslensku.
Þetta er allt spurning um fegurðarskyn, ég er sammála Silju.
Mér finnst það líka fallegra. Er samt að reyna að venja mig á að skrifa skrýtið.... skrýtið.
Ég hélt að það mætti skrifa bæði týpurnar.
En hvað er málið með HANA hlakkar til.... vona að þú náir að laga þetta áður en mamma sér þetta ;)
Þið þarna prófarkalesarar...
Skrifa ummæli