miðvikudagur, 24. júní 2009

Litla systir

Ég fór í vaxtarsónar í morgun því grunur lék á að krílið væri aðeins of lítið. En aldeilis ekki, bara alveg passleg og allt í góðu standi :) Jú jú þetta er ennþá stelpa, enda er ég voða lítið í orkudrykkjunum. Það var víst ein á barnalandi sem hélt því fram að börn gætu skipt um kyn á meðgöngu ef mamman drykki of mikið af orkudrykkjum.Hún setti þennan fína stút á munninn fyrir foreldrana :)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Haha! Þetta með orkudrykkina er bara það besta sem ég hef heyrt...

Þórdís

Nafnlaus sagði...

Sæt mynd :-)
Af hverju var haldið að barnið væri lítið? Ég er með miklu minni bumbu en þú (skv. mynd af þér hér að neðan og fólk er ALLTAF að segja mér hvað bumban mín sé lítil) .. á ég að biðja um vaxtarsónar, just in case? Eftir hverju er eiginlega farið?
Kveðja Hulda (sem vann með þér á Ægisborg hér í den og hitti þig í Fullfrísk.. já og fyrir utan Kópavogslaug um daginn :-))

Silja sagði...

Ljósan þín hlýtur að senda þig í vaxtarsónar ef henni finnst svo. Ég var mæld 31 cm en var komin 33 vikur svo ég var send. En cm eiga nokkurn vegin að fylgja vikunum.