fimmtudagur, 25. júní 2009

HK keppir við HK

Vorum að koma af fótboltaleik sem aldrei fyrr :) Hildur og félagar í Val voru að keppa íslandsmótlsleik við HK. Leikurinn fór 3 - 2 fyrir Val. Hér þeysist Hildur fram hjá tveimur Hk stelpum.

Þessi hér er hins vegar farin að hafa áhyggjur af mömmu sinni með stóru bumbuna. Hún var farin að hamstra í kaffitímanum í leikskólanum þegar kennarinn hennar spurði hvort hún ætlaði ekki að borða vínberin. JM sagðist ætla að taka þau með sér heim þegar kennarinn sagði að við tækjum ekki mat með sér heim úr leikskólanum.
JM: "Veistu hvað... mamma mín er með rosa stórt barn í maganum og hún getur ekki beygt sig og ekki farið í búðina"

1 ummæli:

Unknown sagði...

JM er umhugsunarsöm eins og mamman,
Kveðja,
stoltur afi.