fimmtudagur, 11. júní 2009

Esjuferð 6. júní

gfVið fjölskyldan skelltum okkur á Esjuna í blíðskaparveðri ásamt fríðum flokki fótboltastelpna. Maggi og Júlíana voru að fara í fyrsta skipti en við Hildur höfðum farið einu sinni áður. Hildur rauk upp með stelpunum þannig að ekki náðist mynd af henni á uppleið. Maggi byrjaði með okkur Júlíönu en stakk okkur fljótt af þar sem við fórum ekki langt upp. En það sem verra var að ég gleymdi að afhenda honum myndavélina til að festa þennan merka atburð á filmu. Það eru því ekki til neinar sannanir fyrir því að hann hafi komist upp. Í staðinn tók ég óspart myndir af Júlíönu og Gunnari Degi :) Þegar niður var komið voru grillaðar pylsur ofan í liðið. Myndirnar tala svo sínu máli.






1 ummæli:

Unknown sagði...

Flott hjá ykkur, myndarbumba Silja mín