laugardagur, 16. ágúst 2008

Pabbi segir já.

Ég var að lesa fyrir Júlíönu þegar hún bað um mjólk að drekka. Við erum að reyna að sporna við mjólkurþambi hennar á kvöldin þannig að ég neitaði. Hún gefst ekki svo auðveldlega upp.

Júlíana: Má ég fá mjólk að drekka.
Ég: Nei bara þegar þú vaknar.
J: Jú mig langar í mjólk að drekka.
Ég: Það er ekki í boði núna.

Smá þögn.

J: Má ég fá mjólk að drekka.
Ég: Júlíana ég var búin að segja nei.
J: Pabbi segir já.
Ég: Pabbi er ekki heima.
J: Pabbi segir já.
Ég: Hvenær sagði hann já?
J: Klukkan hálf sjö.

3 ummæli:

Þórdís sagði...

Júlíana setur alveg nýtt fjölskyldumet í þrjósku...

Hildigunnur Einarsdóttir sagði...

þetta er greinilega í ættinni.Ásta notar þetta mjög mikið, pabbi minn/mamma mín/afi minn/amma mín/ sagði að ég mætti gera þetta....

Nafnlaus sagði...

Agneta gerir allt sem ég bið hana um.... right - hún er alveg eins og frænkur sínar.