sunnudagur, 17. ágúst 2008

Íslandsmeistarar

Já þær urðu íslandsmeistarar stelpurnar eftir hörkuleik við Breiðablik. Leikið var í hávaðaroki og mígandi rigningu í Grindavík. Valsstelpur byrjuðu leikinn með vindinn í fangið en náðu að skora eitt mark þegar Hildur kom honum glæsilega í netið þegar fyrri hálfleikur var svona u.þ.b. hálfnaður. Breiðablik náði fljótlega að jafna og var staðain 1-1 í hálfleik. Þetta var því mjög spennandi og taugaveiklaðir og rennblautir foreldrar á hliðarlínunni.
Meiri partinn af seinni hálfleik var staðan jöfn þangað til að Snædís (til hægri við Hildi á myndinni) setti boltann í netið með skoti fyrir utan vítateig. Stuttu seinna fær Hildur boltann úti á kanti og sólar með hann framhjá tveimur grænum blikastelpum og tekur skot og beint í netið. Frekar flott verð ég að segja. Síðasta markið kom svo þegar Hildur var ein á móti markmanni og þrumaði honum í netið.
Ótrúlega flottur leikur og frábærir íslandsmeistarar :)


























Eitt gullkorn frá Júlíönu í lokin. Júlíana fór á klósettið heima hjá ömmu sinni áðan og Jóna fór með henni til að hjálpa. Júlíana þurfti sem sagt að kúka.

Júlíana: Það koma bara einn lítill.
Jóna: Ertu þá búin?
Júlíana: Nei mamma hans er að koma núna.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með Hildi og titilinn! Þetta er upprennandi landsliðskona held ég bara :D

Unknown sagði...

Glæsilegt Hildur Karitas Íslandsmeistari og til hamingju.

ps. Varð þetta fjölskyldudrama hjá Júlíönu ?

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með Hildi - frekar flott frænka :)

Þórdís sagði...

*grátúrhlátri*

Til hamingju aftur Hildur Karitas. Snillingur.