Ég hef nú gert svona áður að mig minnir þegar klukkið tröllreið íslenskum bloggsíðum.
Var klukkuð af Aðalheiði Rósu í þetta sinn.
1. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Saug munnvatn fólks á Tannlæknastofu Steinars föður míns.
Steikti ófáa hamborgara í Ak- Inn (gellunesti) á Akureyri.
Var einu sinni bankastarfsmaður í Íslandsbanka.
Leikskólakennari á Klömbrum.
2. Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held upp á:
Með allt á hreinu.
Englar alheimsins.
Brúðguminn.
Er nýbúin að sjá Reykjavík Rotterdam, hún er ansi góð.
3. Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Á hinum ýmsu götum á Akureyri.
Bangor, Maine, USA.
Kaupmannahöfn, mjög stutt reyndar.
Kópavogur, jú jú það var ágætt að búa í Kópavogi.
4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
New York, dásemd
Barcelona
London
Hrísey
5. Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Dallas
Grey´s Anatomy
Sex and the city
6. Fjórar síður sem ég skoða daglega:
ruv.is
mentor.is
allskonar blogg
Facebook
7. Fernt sem ég held upp á matarkyns:
Humar
8. Fjórar bækur sem ég hef oft lesið:
Las Öddubækurnar í tætlur á mínum yngri árum.
Er að lesa í annað sinn bókina Perlur og Steinar; Árin með Jökli um hjónaband Jökuls Jakobssonar og Jóhönnu Kristjónsdóttur.
9. Fjórir staðir sem ég myndi helst vilja vera á núna:
Í Central Park, helst af öllu.
En fyrst það er ekki í boði, þá bara í snjónum á Akureyri.
10. Fjórir bloggarar sem ég klukka:
Hildó frænka
Rassabollurnar
Steinunn Inga
Shit, þarf að finna mér fleiri linka.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli