Jú ég fór með 40 stelpum til Siglufjarðar um helgina og sem gefur að skilja var ég úrvinda þegar ég kom heim aftur, eiginlega gjörsamlega dauð bara.Valur fór með sex lið á mótið. 3 lið í 5. flokki og önnur 3 lið í 6. flokki. Hildur var í A liði í 6. flokki og unnu þær stöllur alla sína leiki þangað til að þær spiluðu úrslitaleikinn á mótinu á móti KR en þær töpuðu honum 1-0. En það er víst líka hollt að tapa og ekki leiðinlegt að fá bikar fyrir að vera í 2. sæti :) Hildur heldur bikarnum á lofti á myndinni hér fyrir ofan.
Þess má þó geta að öll lið Vals voru í verðlaunasæti, þrjú lið fengu gull og hin þrjú silfur.
Næsta helgi eru svo úrslit í íslandsmótinu á Grindavíkurvelli. Þar eiga þær góða mögueika á að verða íslandsmeistarar. Þær tóku þriðja sæti á símamótinu, annað sæti á pæjumótinu og því tími til kominn að taka fyrsta sætið núna.
Er ekki alltaf rok og rigning í Grindavík...?
Engin ummæli:
Skrifa ummæli