sunnudagur, 8. júní 2008

Markaskorarinn


Hildur var að keppa í dag á Knattspyrnuhátíð í Laugardal. Hún skoraði 5 mörk af 11 sem liðið skoraði í heildina og þær sigruðu mótið. Ég skil ekki hvaðan hún fékk knattspyrnuhæfileika sína, ekki frá mér. Hún hló að mér um daginn þegar hún var að kenna mér Zidane snúning og Ronaldinho skæri eða hvað sem þetta nú heitir allt saman.

Í fyrramálið byrjar hún á Klifurnámskeiði í Klifurhúsinu ásamt vini sínum sem heitir því fallega nafni Nökkvi en hún kallar hann Nölla.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Nafnlaus sagði...

Snillingur hún Hildur, því er ekki að neita. Hún hefur líklega fengið knattspyrnuhæfileikana frá mér.

Nafnlaus sagði...

Ég hugsa að knattspyrnuhæfileikarnir komi frekar frá mér. Man ekki betur en að mitt lið hafi sigrað fótboltamótið á seinasta ættarmóti!

Silja sagði...

Varstu sem sagt í liði ;)