Síðasta föstudag 6. júní, voru skólaslit í Háteigsskóla. Hildur var að ljúka 4. bekk, útskrifaðist af yngsta stigi með glæsibrag. Vitnisburðurinn sagði alla vega að hún væri að standa sig með prýði stelpan. Næsta haust tekur miðstigið við sem þýðir nýr kennari. Hlín Helga er búin að kenna Hildi í 4 ár og við kvöddum hana með tárin í augunum, betri kennara gæti ég ekki hugsað mér fyrir Hildi og Hildur er sammála mér :)

Júlíana fékk sumarklippingu í dag. Hún fékk sleikjó í verðlaun :) Hún er líka orðin valsari eins og sést.

Í kvöld gekk Hildur inn á völlinn með leikmönnum KR í leik Vals og KR á Hlíðarenda. Á myndinni er Hildur nr. 18 að leiða KR-ing nr. 23. Valur vann KR 2-1 í spennandi leik. Hildur spurði systur sína í kvöld hvort hún ætlaði að æfa með Val þegar hún yrði stór. Júlíana svaraði um hæl: "Já VÚHÚ." Það verður ekki langt í að Hildur leiði litlar steplur, jafnvel litlu systur, inn á völlinn þegar hún verður komin í meistaraflokk.

Júlíana bað stóru systur að lesa fyrir sig fyrir svefninn og Hildur var til í það. Júlíana kom þá með bókina Litla hafmeyjan og Hildur var ekki alveg til í að lesa hana. Júlíana sagði þá : "Æi Hildur láttu ekki svona". Þar við sat og þær enduðu upp í rúmi sú stóra las að sjálfssögðu í valstreyjunni og sú litla hlustaði einbeitt með nýju klippinguna :)

1 ummæli:
Einstaklega flottar og efnilegar, það má nú segja.
kveðjur og hamingjuóskir
Skrifa ummæli